UpphafssíðaPosted by Gudjon Tue, Jul 6 2010 11:25:58Hæ hæ,
Já það eru sko orðin ár og dagar síðan það var skrifað á þessa síðu enda ekki okkar aðalsíða þar til núna. Annars er allt gott af okkur ég og Dikka í vinnu og krakkarnir í sumarfríi

En núna förum við fljótlega öll fjölskyldan af stað í sumarfrí.
UpphafssíðaPosted by Gudjon Wed, Mar 18 2009 19:47:42Já en og aftur erum við léleg að skrifa á síðuna hérna enda erum við með tvær síður í gangi þessa og svo http://danskur.squarespace.com og það var nú meiningin að nota bara eina síðu en svona hafa hlutirnir þróast.
Af okkur er bara allt gott að frétta ég er á fullu í vinnunni eins og Dikka og nú fer að styttast í alvöruna hjá mér þegar ég tek mína fyrstu sólarhrings/viku vakt þ.e.a.s. þann 17.apríl.
Sigvaldi er á fullu í handboltanum en tímabilið þar fer að líða undir lok, Þeir klára núna í lok mars en svo fara þeir til Spánar um páskana í keppnisferð. Hann er líka byrjaður á undirbúningstímabilinu hjá fótboltanum og eru þeir búnir að spila nokkra leiki þar og tapa þeim öllum

Elna er líka á fullu í handboltanum og stendur sig eins og hetja og hefur hún verið að spila með eldri flokknum af og til ásamt sínum flokki. Hún er mjög hörð af sér í handboltanum. Fótboltinn fer að byrja hjá henni líka og tók bekkurinn hennar þátt í skólamót um daginn og gekk það bara vel hjá henni, og að eiginn sögn þá bar hún af í sínum aldursflokki

þótt að liðinu hafi nú ekki gengi eins og best var á kosið sem sagt 1 sigur, 1 jafntefli (skandall hjá þjálfara) og 1 tap. Elna er líka í sundi 1 sinni í viku þannig að það er nóg um að vera hjá henni.
Símon er einnig í handboltanum og gengur honum rosalega vel, hefur hans lið nánast unnið alla leik í þeim mótum sem þeir hafa tekið þátt í. Það er rosaleg gaman að sjá drenginn reyna apa eftir stóru strákunum, sem sagt að lyfta sér upp og skjóta. Hann er líka að æfa sund 1. sinni í viku og svo eins og hjá hinum þá fer fótboltinn að byrja.
Svona almennar fréttir af okkur þá lítur út fyrir að við hjónin séum á leið til Gautaborgar í lok júlí á tónleika með U2. Svo standa fyrir dyrum framkvæmdir á húsinu, það átti alltaf eftir að ganga endanlega frá flutningnum á herbergjum krakkanna upp. Það sem eftir er að klára setja glugga á hvort herbergi fyrir sig og svo eina hurð út á svalirnar.
UpphafssíðaPosted by Gudjon Wed, Feb 18 2009 11:42:41Já það er ekki auðvelt að halda svona síðum úti, en allavegna verður reynt að koma með nokkur innlegg hérna af og til 
Það er sem sagt það að frétt af okkur að ég er búinn með skólann og Dikka er við það að verða búin með sitt nám. Ég er byrjaður að vinna hjá fyrirtæki sem heitir ELRO og er staðsett í Randers, það tekur mig um það bil 30 mín að keyra þangað
. Dikka er á sínum stað á Skejby sygehus. Börnunum gengur vel í skólanum, þannig að það er bara gott ástand á okkur.
Kveður úr DK
UpphafssíðaPosted by Gudjon Fri, Apr 4 2008 21:23:07Já nú erum við orðin 6 í fjölskyldu, nú í byrjun mars fjölgaði hjá okkur og gengur bara vel með uppeldið. Börnin eru sátt við nýja fjölskyldumeðliminn að mestu nema þegar hann tekur uppá að stríða þeim þá er ekki kátt í kotinu.

UpphafssíðaPosted by Gudjon Sun, Apr 15 2007 13:05:21Nú erum við hjónin og Doddi að skríða á fætur eftir skemmtilegan dag og nótt, það var party hérna hjá okkur í gærkvöldi. Hingað mættu nokkrir af Íslendingunum í bænum ásamt Søren Sloth sem er danskur vinur okkar, hér var drukkið sungið og hlegið mikið. Ætli maður setji ekki nokkrar myndir inn á síðuna svo fólk getið séð hverning liðið lýtur út drukkið
Í gær var stór hluti af fjölskyldunni að spila fótbolta, Elna spilaði tvo leiki á útivelli og vannst einn 3-1 og tapaðist einn 3-2, Sigvaldi spilaði við AGF og vann HIK 5-0 og svo Spilaði ég með HIK og við unnum 3-1 og var það með gleði í hjarta sem maður byrjaði að hella í sig bjór strax eftir leik og á endanum tók það sinn toll
það átti samt að reyna fá okkur Dodda til að spila með sfHeklu í dag en það var ekki vel séð á heimilinu og Doddi var ekki með heilsuna í lagi til þess.
Hilsen Gauz
UpphafssíðaPosted by Gudjon Sun, Apr 8 2007 19:13:16Já enn á ný er ég búin að búa til nýtt svæði fyrir bloggið okkar
.
Nú er Páskadagur og erum við búin að endurheimta frumburðin okkar hann Sigvalda, hann var að koma frá handbolta stefnu í Aabybro sem er búin að vera síðan á fimmtudag. Hann kom heim sem sigurvegari B-liða og náði hann að skora ein 5mörk og erum við foreldrarnir mjög ..... af honum.
Við viljum óska þeim Drífu, Þórði, Kristleifi, Kolbeini og Ronju til hamingju með að vera flutt inn í nýja húsið. Við fáum reyndar að sjá Þórð mjög fljótlega aftur og hlökkum við til að sjá hann.
Við urðum að fresta Páskalambinu fram til morguns þar sem konan fór hamförum í eldhúsinu við bakstur og komu þau Svenni, Helena og börn hér í kaffi þannig að það var ekkert pláss fyrir kvöldmat eftir þessa veislu.
Í gærkvöldi vorum svo Tommi, Magga og strákar í mat hjá okkur og var boðið uppá osta með vinberjum á RITZkexi í forrét og í aðalrétt grillaði kokkurinn nautalund sem var svo borin fram með fersku salati, kartöflum og grilluðu grænmet ásamt bernes- og favoritsósum frá Jensens Buffhous, í eftirrétt var svo ís. Þessu var að sjálfsögðu skolað niður með eðal rauðvíni.
Á morgun verður svo erfiður dagur þar sem hann byrjar á æfingu hjá Sigvalda kl 11 og svo mæti ég sjálfur í leik með HIK kl 13 og verð ég örugglega búinn að vera annað kvöld þegar ég þarf að fara líta í bók til að undir búa mig fyrir skóla á þriðjudaginn 
Við óskum öllum gleðilegra Páska.